Evklíðskt spjallrými í tímans tönn. . . dúddar í Skandinavíu
Myndir
15.06.2007 15:08:20 / ragnheia

Loksins komið að því:)

..já spennufall er það!! Eftir strembna 5 mánaða vinnu sér maður loks árangurinn:) Andri flutti meistaraverkefnið sitt áðan og það gekk bara mjög vel:lol::lol: Nú er loksins hægt að kalla hann Meistara Andra hahhah.Ég er rosa stolt af honum:) Freyr, Stína, Dóra og Einar mættu á kynninguna ásamt leiðbeinadanum, yfirmanni deildarinnar og nokkrum doctorsnemar. 

Síðustu mánuði hefur Andri verið svo sokkinn í verkefnið að ég hef gefið honum gælunafnið HUGSI. Þar sem oft á tíðum hef ég ekki náð sambandi við hann fyrr en eftir nokkrar mínutur þar sem hann var alltaf að hugsa um verkefnið:) Það hefur hins vegar virkað vel að kalla hann Hugsi því þá hef ég fengið svar mun fyrr:lol:Hann er samt ekki sá eini sem hefur fengið svona skemmtilegt nicknafn heldur hef ég skírt tölvuna Hugsi II. Þar sem verkefnið hjá honum var orðið svo stórt að það tók tölvuna örugglega 5 mínutur bara að "seifa" verkefnið.

Nú eru samt dagar Hugsa og Hugsa II liðnir:=)..Andri kemur aftur og að sögn hans langar honum að henda tölvunni í götuna þar sem pirringurinn á Hugsa II hefur aukist óendanlega mikið síðast liðin mánuð!!! Núna er stefnan bara frí og afslöppun í 2 vikur. Við lendum síðan á klakanum föstudaginn 29.júni og svo er byrjað að vinna á mánudeginum.  Ég hugsa að við bloggum ekki mikið meira, kannski eitt blog í viðbót á ferðalaginu, aldrei að vita.

kveðja frá Stokkhólmi!! Rg..


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 15:58:22 / ragnheia

..bara nokkrir dagar!!

 

Þá er sumarið  komið:lol: Það er óhætt að segja!! Hér hefur verið bóngóblíða, 25-27 stiga hiti síðustu daga. Manni líður eins og maður sé staddur Spáni:) Var í síðasta prófinu á fimmtudaginn en Andri flytur verkefnið sitt á föstudaginn þannig þetta er allt að koma. Við eru rosa spennt að flytja heim og hitta alla. Núna er maður á fullu að pakka búslóðinni sem við æltum að senda heim. Við seldum samt sem áður rúmið, sófann og stólinn okkar í gær okkur til mikillar hamingju. Seldum þetta allt á spotpris því við vildum bara losna við þetta svo við þyrftum nú ekki að fara leigja bíl til að henda þessu:). Innifalið í verðinu var að við mundum hjálpa kaupandanum að flytja draslið þannig í gær stóðum við sveitt í búslóðarflutningum um hverfið:) haha..það gekk þó vel...

Annars hefur mest lítið gerst hjá okkur síðasliðna viku annað en skóli og aftur skóli. Reynar var nóg um að vera hér í Stokkhólmi. Hér var kraftakeppni milli Svíþjóðar og Íslands, tónleikar með Stuðmönnum, Bó og fleiri skemmtilegum. Það var leiðinlegt að missa af því. Hins vegar var ekki eins leiðinlegt að missa af landsleiknum!! enda tap með  5 MÖRKUM..halló!!..Andri fór á leikinn en hann  var svo "óheppin" að missa af 3 mörkum af  5 haha.. Hann var ekki sá hressasti eftir leikinn!

en jæja svo eitt að lokum:það er eitt sem ég skil ekki! afhverju getur maður ekki sofið út þegar maður má sofa út. Síðastliðna tvo daga þá hef ég vaknað eldhress klukkan 8 á morgnana og t.d í morgun lagði ég mig alla fram við að pirra Andra þar sem hann var sofandi, því ég hafði ekkert að gera hahah...ég var var samt búin að reyna fara í sólbað en var strax komin ógeð á því eftir hálftíma.Hvað er málið!! Það er kannski ástæða afhverju ég verð aldrei brún! hef ekki þolinmæði í svona lagað!! jæja þetta fer að verða nóg, ég ætla að fara skipuleggja ferðalagið sem við ætlum í eftir viku8). Vá ég hlakka til:lol:

later..Ragga

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 16:33:44 / ragnheia

..smá update..

 

Jæja það er alveg komið tími á smá update þótt það sé nú mest lítið að frétta af okkur útlendingunum. Síðustu vikur hafa einkennst af lærdómi og verkefnisvinnu hjá okkur. Nú á ég aðeins eitt próf eftir og það er 7.júni og þið getið ekki trúað hvað ég hlakka til að það klárist:).. Andri mun flytja verkefni sitt vætanlega 15.júni kl:15:00..svo þetta sé nú nákvæmt:) Svo erum við búin að panta flug til Þýskalands 17. júni og þar hittum við m&p.

 Annars var helgin fljót að líða enda ekki mikið um lærdóm þá helgina. Á laugardeginum grilluðum við ásamt nokkrum krökkum hér. Hvað er betra en grillað svínakjöt?..namm..hins vegar voru moskitoflugurnar ekki alveg jafn góðar. Við nældum okkur bæði í moskitobit þannig nú er maður síklórandi í þau..óþolandi!!! Sunnudagurinn fór í að þrífa íbúðina enda leit hún út eins og svínastía!! Um kvöldið kíkti Karin til okkar í mat og við spiluðum yatzy:).

Hins vegar símakerfið út að skíta núna. Ég hef ekki getað hringt heim síðustu 4 daga!!!  Og að sjálfsögðu þegar maður getur ekki hringt þá er það mest nauðsynlegt er það ekki!!..þótt það sé kannski svo nauðsynlegt!!!..vona allavega að það fari að komast í lag.

 Jæja ég þarf að drífa mig ..kveðja Ragga


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 16:24:53 / ragnheia

euro hvað??

 

..sit upp í skóla þessa stundina meðan Andri er að gera tilraunir fyrir verkefnið sitt. Andri hefur verið á fullu í verkefninu síðustu mánuði og ég skil ekki þolinmæðina í honum. Ég þarf að gefa honum medalíu þegar hann klárar þetta. Svona er þetta þegar verkefnið snýst um tilraunir þá geta heilu og hálfu dagarnir farið til einskis útaf of mikilli skekkju í mælingum eða óraunhæfum niðurstöðum. Ég veit allavega að ef ég væri í hans sporum væri ég búin að ganga fra labbinu!! í orðsins fyllstu!! Þetta er samt allt að koma hjá honum enda bara mánuður til stefnu8)

Hins vegar er ég ekki alveg að nenna að læra núna:( enda hef ég eydd síðustu klukkustundunum á netinu..úff. Já netið hefur alveg náð að trufla mig 8| Var að láta mig dreyma um fríið sem við æltum að fara í eftir skólann. Reyna að finna einhverja skemmtilega og fallega staði til að heimsækja, mér sýnist vera nóg af þeim..

Á fimmtudaginn skelltum við okkur í  smá Eurovision teiti hjá Stínu og Frey. Það var gaman að fylgjast með Eríki. Mér fannst hann standa sig vel þó að lagið hafi kannski ekki verið það besta. Svo í kvöld ætla Rósa og Einar að halda Eurovison og kosningar partý. Núna heldur maður bara með Svíunum víst við erum ekki inni. Mér þykir sænska lagið nokkuð gott ég er alveg viss um að þeir eigi eftir að vera ofarlega:) Sjáum til. Ég er nú samt sem áður mun spenntari að sjá hvernig kosningarnar fara. Spurning hvort að ríkistjórnin haldi velli!..jæja þetta gengur ekki ég ætla að fara gera eitthvað að viti..ekki veitir af!!!

Góða skemmtun í kvöld:)Rg


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 13:07:59 / ragnheia

hitt og þetta...

 

Loksins helgi!! það er búið að vera svo mikið að gera í vikunni. Afhverju þarf alltaf allt að gerast á sama tíma! Jæja hérna kemur smá update: Í síðastu viku var svona trading day í Behaviroral Finance. Það var spennandi, við áttum sem sagt að fylgjast mér þróun mála hjá Swedbank. Fjármáladeildin hér í skólanum er s.s búin að herma "kauphöllina" þannig við vorum að fylgjast með reuters skjám og fengum "plat" peninga til að fjárfesta. Swedbank var að gefa út ársskýslu hjá sér og við áttum að fylgjast með þróuninni á bréfunum þann daginn. Við vorum þrjú í teymi og ég get ekki sagt að árangurinn hafi verið sá besti...keyptum oft á alltof há gengi...en allavega þá var mjög skemmtilegt að fylgjast með þessu:).

Á laugardaginn var partý hjá FÍNIS(félag ísl. námsmanna í stokkhólmi). Það var mjög gaman. Við ætluðum nú bara rétt að kíkja þar sem það var svo mikið að gera en annað varð upp á teningnum. Við komum heim að  verða 2. Andri var ofurhress eftir að vera búinn að taka þátt  og vinna í tveimur bjórkeppnum rétt áður en við fórum heim. Hins vegar var sunnudagurinn hjá honum ekki alveg eins skemmtilegur:$. Ég var þó nokkuð hressari enda var hópverkefni allan sunnudaginn.

Núna um helgina ætlum við að skella okkur á tónleika hjá lúðrasveitinni hérna í skólanum.(já þið megið alveg hlæja) Karin vinkona mín frá Noregi er að spila í henni og mér langar að hlusta á hana. Það verður fróðlegt að sjá:D Aldrei hef ég farið að hlusta á lúðrasveit áður. Þegar ég hugsa orðið lúðrasveit þá koma bara orð eins og í takt, ljót appelsínugul föt með hatt í stíl, skrúðganga og blásturshljóðfæri:lol: Eftir tónleikana þá eru Stína og Freyr búin að bjóða okkur í mat, það verður stuð:)

Ég veit ekki hvort ég á að taka því persónulega eller hur?..en í  dag í tíma kemur einhver gaur og spyr mig hvernig mér líði og segir að ég virki mjög þreytt..mín svaraði já takk ég er þreytt!!! (enda lærandi frameftir í gær því það var prófi í dag.).. Svo núna þegar ég var á bókasafninu að skrifa þetta blogg koma tveir gaurar í skrítnum fötum og leggja orkudrykk á borðið hjá mér???...hvað segið þið.???er þetta kannski hint...ætli maður fari ekki heim og leggi sig áður en maður fær fleiri komment í dag:)

 Jæja þetta er orðið gott í bili og já góðar fréttir af rafmagnsmálum: Reikningurinn er greiddur! vei

Farið vel með ykkur og góða helgi:lol: Ragga

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 15:51:46 / ragnheia

..hvað er að gerast!

 

Já það blessaða fyrirtæki Vattenfallen er algjörlega búið að missa trúverðugleika sinn hjá okkur!!..eða eins og maður segir á lélegri íslensku ..gjörsamlega búið að drulla upp á bak! já við höfum sem sagt ekki greitt rafmagnsreikninginn síðasliðna 6 mánuði þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá að greiða hann! Eftir að við vorum bæði búin að hringja í þá, senda þeim meil og allavega tvisar  sinnum sent þeim aflestur af mælinum hjá okkur fengum við loksins reikning  í marsmánuði. Að sjálfsögðu fögnuðum við komu reikningsins enda héldum við þá að biðin óendanlega væri loks á enda. Sá reikningur hljóðaði upp á 10.000 kr sem er nokkuð sanngjarnt og eðlilegt (eða allavega miðað við Völu reikning og hún býr í jafnstórri íbúð og í sama húsi). Ok gott mál. Svo leið vikan og við hamingjusöm og sæl en hins vegar vorum við ekki eins hamingjusöm þegar við fengum annan reikning vikunni eftir!!! hann hljóðaði upp á hátt í 60.000 þús krónur!!! HALLO hversu mikið rafmagn greiðir mann fyrir 45 fm. Og btw þá var mesta eyðslan í des til jan þ.e.a.s þegar við vorum heima á Íslandi!!!Úfff...og við hringjum aftur í Vattenfallen og þá fáum við þær fréttir að þetta sé nú eitthvað rugl og það sé búið að gefa út annan reikning á okkur og hann hljóði upp á miklu minna ...Jæja og við bíðum eftir blessaða reikningnum sem við fengum svo loksins í gær!! Hvað haldið þið???.....þá fengum bréf um að við værum búin að borga of mikið og einnig ávísun um að við ættum inn hjá þeim hátt í 28.000 þúsund krónur..ohhh hvað er málið...fínt kerfi hérna í Stokkhólmi maður þarf ekkert að greiða rafmagn hér heldur fær maður bara borgað fyrir að nota það:)..ekki slæmt!!! Æji þetta er alveg frekar pirrandi þannig nú þarf maður enn og aftur að hringja í þetta blessaða fyrirtæki til að fá að borga reikninginn og segja þeim að við eigum ekkert inni heldur það að við SKULDUM..ætli það verði ekki verkefni morgundagsins:S...við bíðum spennt að sjá hvernig þetta endar...

En af öðru þá vann Gerpla mótið um helgina sem er alveg frábær árangur. Fyrsta skipti að íslenskt lið verður Norðurlandameistari í trompfimleikum. Mér til mikillar gremju þá fékk ég ekki miða á mótið:( Hins vegar var bóngo blíða þannig ég og Andri skelltum okkur í göngutúr um Skeppsholmen og löbbuðum alla eyjuna. Það var alveg frábært:) Svo var tekið smá djamm á laugardagkvöldinu:)

..jæja þetta er komið nóg í bili..ég læt ykkur vita hvernig fer með þennan blessaða rafmagnsreikning8|

Farið vel með ykkur.... puss och kram Ragga raflost


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 18:40:39 / ragnheia

Sól og sumarylur....

 

Já það er óhætt að segja að það sé sól og sumarylur. Í dag var um 20 stiga hiti og ekki síðra veður spáð um helgina:)..ég kvarta ekki8) Um helgina er Norðurlandamót í trompfimleikum hér  í Stokkhólmi og ég er svo mikill lúði að ná ekki í miða. Ég sem var búin að hlakka til í svona 2 mánuði að fara að horfa á mótið og hvetja mitt lið en aldrei hafði mér dottið í hug að það yrði uppselt!..svona er nú það. Stundum geri ég mér ekki grein fyrir að maður býr ekki á Íslandi!! Á Íslandi hefur örugglega aldrei verið uppselt á fimleikamót, frekar dræm aðsókn ef eitthvað er!!haha..ég ætla samt að vera mætt áður en að miðasala opnar í fyrramálið og reyna að múta einhverjum....aldrei að vita nema að maður skelli sér bara í fimleikabol og þykist vera keppandi.hahah það hlýtur að virka:)..

Annars voru páskarnir fínir hjá okkur. Fórum í páskamat til Rósu og Einars. Það var alveg frábært:) Á boðstólum var fylltur kalkún og vá hann var svo góður. Takk fyrir okkur:) Við skoðuðum myndir og hlógum af upptökum frá Krítarferðinni. Það var mjög gaman:lol:

en jæja dagurinn hefur fokið frá manni. Ég fór með Karin niður í bæ áðan og keypti mér ís og virti fyrir mér mannmergðina. Maður getur alveg gleymt sér í því. Annars höfum við Andri verið upp í skóla að reyna að læra í dag það er samt svolítið erfitt að sitja inni læra þegar maður veit að það er frábært veður úti...

en jæja við ætlum að drífa okkur heim á leið og gera góðan bragðaref:)..vá það er svo langt síðan ég hef fengið mér bragðaref..namminamm...bara annar ísinn dag,geri aðrir betur8|

kveðja...ísdrottningin


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 17:27:12 / ragnheia

Komin tími til að dusta rykið af hjólinu:)

 

Um helgina fórum við í fyrsta skipti á þessu ári í hjólatúr. Ég var eiginlega búin að gleyma því hvað það er skemmtileg að hjóla og sérstaklega hvað það er gott að fá svona hreint loft í lungun. Á föstudeginum fórum við í bíó eftir langan dag í skólanum. Fórum að sjá myndina Jakten på lykan eða Pursuit for Happiness með Will Smith. Hún var nokkuð góð en kannski ein af þessum týpisku amrísku myndum eller hur!!

Á laugardaginn fórum við út að borða, það var mjög gaman:) Við erum nú ekki alveg nógu dugleg að fara út að borða hér eins og við ættum, þar sem það er svo miklu ódýrara að fara fínt út að borða hér en heima...en svona er nú það. Annars tókum við forskot á páskana síðasta sunnudag. Veit varla hvort ég ætti að nefna það þar sem maður eiginlega skammast sín. Ójá við opnuðum og kláruðum páskaeggið. Og notabene það var númer 7 frá NÓA...gerið aðrir betur...maður er verri en börnin!!..alla páska hingað til hef ég alltaf sagt nei við Andra þegar hann horfir með löngunaraugum á páskaeggið en nú stóð ég ekki freistinguna..frekar slæmt!

Í gær var ég að byrja í nýjum kúrsi og var fyrirlestur í honum allan daginn. Bækurnar í þeim kúrsi voru ekki til í bóksölunni og kennarinn skildi ekkert í því. Samkvæmt karlinum bóksölunni þá var hann ekki beðinn um að panta bækurnar og það var eins og kennaranum væri bara alveg sama...ég þoli ekki svona óskipulagsleysi:evil:!!..Kúrsinn er kenndur á mánuði og við eigum að lesa 2 bækur og þær ekki til!!!..  ég pantaði þær internetinu í gær bara vonandi að þær komi til manns í tíma...annars??

Eftir tímann skelltum við Vala okkur í smá reiðhjólatúr. Fórum upp í Sundbyberg Centrum og ég uppgvötaði fullt af thai-stöðum sem eru örugglega góðir eða það var allavega fullt að fólki að borða þar:)..við prófum þá örugglega á næstunni. Annars gleymi ég skemmtilegustu fréttunum héðan, þær eru að efnaverkfræðingurinn minn er búinn að ráða sig til Alcan í Straumsvík og byrjar hann þar 1.júlí. Þannig nú er bara eins gott að verkefnið klárist fyrir 15. júni svo við komumst í smá frí áður en farið verður að vinna að fullu. Stefnan er að fara með mömmu og pabba í smá Evróputúr. Ætlum líklega að leigja bíl og heimsækja Sviss, Austuríki, Prag og kannski Ítalíu en það kemur freka í ljós síðar..

jæja ég ætla að fara að snúa mér að bókunum ...bið að heilsa í bili...


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:14:49 / ragnheia

Nú væri allir komnir niður í Nauthólsvík....

...ef þetta veður væri á Íslandi. En svekkjandi fyrir ykkur..bara snjór og leiðindi hahahhah8) Það er sól og sumaryl hérna þessa dagana bara vonandi að þetta haldi áfram. Annars var helgin fljót að líða eins og fyrri daginn. Á fimmtudaginn fór ég og Stína á Spexið hjá Völu. Það var mjög gaman. Spexið er svona leikrit sem hver deild í skólanum setur upp og Vala var aðalskvísan í hljómsveitinni:) 

Svo kom Íris á föstudaginn og tókum við eina góða afslöppunar helgi.Við systurnar dekruðum gjörsamlega við okkur, tókum einnig smá beauty teatment með andlitsmaska, fótmaska, hármaska og fram eftir götunum...ekki slæmt það:lol: Takk fyrir komuna sæta mín:)

En jæja loksins er bókin komin í kúrsinum sem ég byrjaði í fyrir tveimur vikum þannig það er eins gott að fara byrja að lesa..yfir og út Ragga rós..


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 17:19:04 / ragnheia

..loksins komið að því...

úff..maður er eiginlega búin að gleyma að maður sé með bloggsíðu..þetta gengur ekki lengur!!...hér kemur allavega ein færsla..
Um helgina kíktu Vala og Eva,mamma hans Andra og systir til okkar. Það var mjög gaman:)...nóg hlegið og brallað, takk kærlega fyrir komuna. :D Annars eru helstu fréttir frá Stokkhólmi þær að ég er að góðri leið að breytast í fíl...já án gríns ég gerði mér grein fyrir því í síðustu viku að ég væri meira að segja komin með feita putta ...þeir hafa nú kannski aldrei verið eitthvað mjóir en nú eru þeir allavega orðnir mun feitari....það er nú mikið sagt ef maður er byrjaður að fitna á puttunum skal ég segja ykkur..þá er sko hægt að ímynda sér hvernig aðrir líkamspartar líta út.... fer ekki nánar út í það..úfff.. en batnandi manni er best að lifa..þannig það er eins gott að taka sig á áður en maður þarf að borga fyrir tvö flugsæti í stað eitt..
Fyrir tveim vikum kíkti Sif úr verkfræðinni í Borg Norðursins og að sjálfsögðu hitti ég smá á hana, það var gaman. Hefði vilja eyða meira tíma með henni en því miður voru prófin að byrja þannig það var bara tekin góð heilsuganga í Gamla Stan:) Annars veit ég ekki alveg hvernig prófin gengu, þau voru erfið..vonum bara það besta:) Annar kúrsinn sem ég var í var kenndur í fyrsta skipti og prófið var mjög ósanngjart en svona er nú það... Núna er ég að byrja í tveimur nýjum kúrsum og mér til mikillar hamingju eru þeir ekki kenndir í stærðfræðideild:) síðustu 5 kúrsar sem ég hef setið hafa allir verið í stærðfræðideild og ég alveg komin með nóg af því í bili..núna er skráð í International economics og Behavioral finance. Annars er Andri er á fullu í verkefninu  og það gengur bara vel:)
Jæja þetta fer að vera gott, ég sem ætlaði að vera svo dugleg í kvöld og lesa fyrir næsta fyrirlestur en þá var ég svona ótrúlega óheppin að bókin er ekki komin í bóksöluna þannig ég get ekki byrjað:)..ætli það verði þá ekki bara American Next Top Model í staðin..ég kvarta ekki:lol: Planið um helgina er það að Íris systir ætlar að kíkja til okkar og annað ekki planað..en jæja bið að heilsa ykkur og farið vel með ykkur:) yfir og út...Ragga ofurbloggari...

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 09:12:10 / aith

Löngu tímabært að blogga

Maður þarf heldur betur að fara hífa upp um sig buxurnar og reyna að blogga e-ð hérna.  Karlinn hefur ekki bloggað í marga mánuði og því komi tími til að létta á sálinni öllum ævintýrunum sem ég hef gengið í gegnum.  Haldið ykkur fast!

Það hefur verið hæg breytileg eða norðaustlæg átt síðustu vikur í Stokkhólmi. Oft léttskýjað og frost 0 til 12 stig, kaldast við sjóinn. Í janúar og desember var mjög oft austlæg átt og kalt í veðri. Víða dálítil él. Í nóvember var stíf norðaustanátt og ofankoma, þó síst í suður Stokkhólmi. kalt var í veðri. Í október var rjómablíða, hiti um og yfir 10 gráður, hlýtt og léttskýjað.

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 21:04:51 / ragnheia

Kuldaboli bítur...

Ójá það er kalt í borg Norðursins. Án gríns þá hélt ég að ég myndi verða að ísstyttu í gær..hitastigið eða frekar kuldastigið fór alveg niður  í -14 !!! ..dagurinn í dag var þó betri enda var ég klædd eins norðurpólsfari í skólanum. Fólki hefur örugglega brugðið við að sjá mig…eða allavega hugsað HVAÐAN kemur þessi eiginlega!!!..einhver hallærislegur skiptistúdent hahah...

 Í gær skelltum við okkur í heimsókn til vina okkar hér og á boðstólnum voru þessar góðu vatnsdeigsbollur…namm nammm.. ekki var ég svona dugleg að baka bollur þennan bolludaginn..en hins vegar var ég með eindæmum dugleg að borða þærJ...það vantar sko ekki!! :$

Síðasta helgi var frekar róleg hjá okkur, kíktum með Völu í bíó og gerðum svo lítið annað en að lesa í okkur fróðleik og slappa af. Helgina þar áður var smá partý hjá Stínu og Frey og svo var haldið á árshátíð Íslendingafélagsins hér í Stokkhólmi. Páll Óskar lék fyrir dansi og skemmtum við okkur konunglegaJ …Andri fór nátturlega á kostum á dansgólfinu eins og fyrri daginn…algjörlega allir dansarnir teknir..golfdansinn, hipphoppdansinn, hestadansinn, höfrungadansinn og fram eftir götunumJ.. Við dönsuðum svo mikið að við þurftum að taka leikhlé og kasta af okkur mæðunni þegar klukkutími var eftir að dansleiknum..formið ekki betra en þetta…úff. 

 

 Annars var planið að fara á skíði á laugardaginn hér í borginn en æji ég veit ekki..bæði ólýsanlegur kuldi og nóg að læra… 

Jæja þetta er orðið gott í bili..ég er farin að læra..bara 2 vikur í próf!

 Yfir og út..Ragga 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 15:11:18 / ragnheia

blogg. . . hvað er nú það!


Jæja loksins eitt blogg:)..alveg kominn tími á það held ég. Svona er þetta þegar maður er ekki með netið heima hjá sér..Ég sem hélt að maður væri alveg orðinn "totally "háður internetinu!!..þar sem maður kíkti á póstinn sinn og mbl svona nokkrum sinnum á dag og tala nú ekki um tímasóunina sem fór í að lesa þessar blessuðu heimasíður ...en vitið þið hvað..þetta venst bara ótrúlega vel:)....við ætlum meira að segja ekkert að fá okkur netið því það er svo stutt í að við förum heim... en jæja af öðrum málum ...

síðan við komum höfum við brallað mikið og fengið t.d 2 heimsóknir. Fyrstu helgina komu Sigga Dóra og Grétar til okkur og svo síðari kom Linda skvís:). ...farið var siglingu um Stokkhólm, búðir ..að sjálfsögðu:)..kíkt í Skansen..og reyndar eiginlega bara í þeim tillgangi að skoða birnina...en því miður eru þeir ekki í Skansen yfir hávetur..mér og Lindu til mikillar gremju..í staðinn fengum við að frjósa í hel þar sem kuldinn var vægast sagt mikill..burr..fengum þó að sjá úlfa og uglur:)  Það var rosa gaman að fá þau öll í heimsókn og fá smá "quality time" með þeim þar sem maður náði nú ekki að svo miklum tíma með öllum heima á klakanum um jólin.

Annars er allt gott að frétta af okkur Andra.Við skelltum okkur á gönguskíði um daginn. Við vorum nefnilega svo sniðug að taka skíðin með okkur út, þ.e.a.s skíðin sem við fengum lánuð hjá foreldrum okkar. Skíðaferðin gekk bara þokkalega þrátt fyrir nokkra byrjunarörðugleika enda var þetta frumraun okkar á gönguskíðum .Byrjuðum reyndar á að fara niður eina smá brekku sem var kannski aðeins stærri en okkur fannst..við vorum alveg eins og trúðar ahahhaha..bara ef þetta hefði verið fest á filmu:)...síðan þegar líða tók á vorum við alveg komin með göngutaktinn á skíðunum:) þetta var allavega stórskemmtilega:)..mæli með gönguskíðum..

af skólamálum þá er alveg nóg að gera í skólanum eins og við er að búast. Andri er núna byrjaður á meistaraverkefninu og tekur líka 2 kúrsa með því sér till skemmtunar:)..Ég er hins vegar bara nokkuð ánægð með kúrsana sem ég valdi þetta periodið....Svo er ég og Vala komnar í stíft prógramm í ræktinni...stíft að mínu mati en e.t.v ekki allra:)..við mætum 4 sinnum í viku núna og þar af þrisvar sinnum á morgnanna:)...hvað haldið þið að ég haldi þetta lengi út?...þetta er önnur vikan núna..sem er svei mér þá stórtíðindi:).. en jæja þetta er orðið gott í dag:)..ég er farin heim að borða súkkulaðikökuna sem ég bakaði í dag og svo ætlar Andri að elda einhverja stórsteik handa skvísunni sinni:D

knus och kram...Ragga


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 20:41:45 / ragnheia

Home sweet home

Jæja þá er það loksins Ísland, fagra Ísland:lol: og jólafrí..get ekki beðið um meira en það:lol::lol::lol: Það er frábært. Ég býst ekki við að skrifa mikið hér næstu daga/vikur...við óskum ykkur bara gleðilegra jóla og gæfuríkt komandi ár...

Bless í bili

Ragga og Andri


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 21:15:01 / ragnheia

Íslensk kjötsúpa og femin.is...

Það er óhætt að segja að lífið hjá manni þessa stundina er frekar tillbreytingarsnautt. Einkennist mest af lærdómi og visku enda stutt í próf. Reyndar buðum við Stínu og Frey í mat á föstudaginn og síðan var horft á lokaþáttinn úr Idolinu. Haldiði ekki að kokkarnir hafi hrist fram eitt stykki Íslenska kjötsúpu. Ég sem hefði aldrei trúað að við færum að elda kjötsúpu það er bara svona mömmu matur. Mamma snillingur kom með svona tonn súpukjöti og súpujurtum þegar hún kom í heimsókn till okkar þannig við vorum eiginlega neidd til þess að elda kjötsúpuna. Það var samt frábært að fá íslenska kjötsúpu, Okkar súpa fær svona 4 stjörnur af 5 mögulegum, þokkalegt miðað við fyrstu tillraun:=)

 En jæja þá er komið að stelpuhorninu í þetta skiptið, sá nokkur heilræði á annari síðu sem mér fannst mikið vera til í og mig langaði að deila því með ykkur!!!. Þannig þeir strákar sem detta hingað inn geta sleppt því að lesa áframhaldið……. eða það gerir Andri allavega… :lol:

• Gifst þú aðeins af ást  
• Vertu fyrri til að heilsa

• Forðastu neikvætt fólk

• Njóttu fólks en ekki nota það

Færðu ástvinum óvæntar gjafir

• Gleðst þú yfir velgengni annarra

• Hældu þremur manneskjum á dag

• Stefndu að SNILLD, ekki fullkomleika

• Gleymdu aldrei tímamótum í lífi þínu

• Vertu stórhuga en njóttu samt hins smáa

• Líttu ekki á heilsuna sem sjálfgefinn hlut

• Þú skalt umgangast þá sem umgangast þig

• Heilög þrenning er hæfni, hvíld og kjarkur
• Gefðu fólki annað tækifæri en ekki það þriðja

• Hældu fólki í viðurvist annarra ef það á það skilið

• Sýndu börnunum hlýju eftir að hafa skammað þau

• Vertu umburðarlyndur gangvart sjálfum þér og öðrum

• Vanmettu aldrei hæfileika þinn til að breyta sjálfum þér

• Vertu hugrakkur þótt þú sért það ekki, enginn sér muninn

•Gefðu aldrei neitt uppá bátinn, kraftaverkin gerast daglega

• Vertu hógvær, heilmiklu var komið i verk áður en þú fæddist

  Sviptu fólk aldrei voninni, kannski er hún það eina sem það á
• Vendu þig af öfund, hún er uppspretta margs konar óhamingju

• Eyddu ekki tíma þinum i að gera þeim til hæfis sem gagnrýna þig

• Veldu lífsförunaut af kostgæfni. Á þessari einu ákvörðun velta 90 hundraðshlutar af hamingju þinni eða vansæld

• Hættu að kenna örðum um, berðu ábyrgð á lífi þínu á öllum sviðum

• Farðu varlega í að lána vinum þinum pening þú gætir misst hvoru tveggja

Vertu ekki dónalegur við þjóninn þó maturinn sé vondur, hann eldaði ekki

• Þú skalt meta fólk eftir því hvað það hefur stórt hjarta en ekki eftir buddunni

• Vertu viðbúin, þú færð aldrei annað tækifæri til að koma vel fyrir við fyrstu sýn

• Notaðu það sem mælikvarða á velgengni þina hvort þú býrð yfir sálarró, góða heilsu og ást

• Eyddu ekki tíma í að harma mistök í fortíðinni. Lærðu af þeim og haltu svo áfram

• Gerðu lista yfir 25 atriði sem þú vilt upplifa áðuren þú deyrð, vertu með hann i veskinu og skoðaðu hann oft....

• Þegar þú hittir fólk i fyrsta skiptið varastu þá að spyrja það um starf, njóttu félagsskaparins án nokkurra merkimiða

• Gott hjónaband byggist á tvennu, að finna þann rétta, að vera sú rétta 
• Lifðu lífinu þannig að grafaskrift þin gæti verið \"ég iðrast ekki neins\"

• Prófaðu að gangrýna engan og ekkert og finndu hvernig það er

• Vittu hvenær er best að þegja og hvenær er best að tala

• Lærðu að hlusta tækifærin láta oft lítið fyrir sér fara

• Mundu eftir öllu sem þú átt að vera þakklátur fyrir

• Mundu að þeir sigra sem hinir nenntu ekki
• Gættu þin á þeim sem hafa engu að tapa

• Gerðu ekki ráð fyrir að lífið sé réttlátt

• Veldu fallegri leiðina þó hún sé lengri

• Gerðu ekki sömu mistökin tvisvar

• Lofaðu miklu og stattu við mikið

• Láttu fólk njóta vafans

• Varðveittu leyndarmál
• Taktu fullt af myndum


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10