Evklíðskt spjallrými í tímans tönn. . . dúddar í Skandinavíu
Myndir
13.04.2007 18:40:39 / ragnheia

Sól og sumarylur....

 

Já það er óhætt að segja að það sé sól og sumarylur. Í dag var um 20 stiga hiti og ekki síðra veður spáð um helgina:)..ég kvarta ekki8) Um helgina er Norðurlandamót í trompfimleikum hér  í Stokkhólmi og ég er svo mikill lúði að ná ekki í miða. Ég sem var búin að hlakka til í svona 2 mánuði að fara að horfa á mótið og hvetja mitt lið en aldrei hafði mér dottið í hug að það yrði uppselt!..svona er nú það. Stundum geri ég mér ekki grein fyrir að maður býr ekki á Íslandi!! Á Íslandi hefur örugglega aldrei verið uppselt á fimleikamót, frekar dræm aðsókn ef eitthvað er!!haha..ég ætla samt að vera mætt áður en að miðasala opnar í fyrramálið og reyna að múta einhverjum....aldrei að vita nema að maður skelli sér bara í fimleikabol og þykist vera keppandi.hahah það hlýtur að virka:)..

Annars voru páskarnir fínir hjá okkur. Fórum í páskamat til Rósu og Einars. Það var alveg frábært:) Á boðstólum var fylltur kalkún og vá hann var svo góður. Takk fyrir okkur:) Við skoðuðum myndir og hlógum af upptökum frá Krítarferðinni. Það var mjög gaman:lol:

en jæja dagurinn hefur fokið frá manni. Ég fór með Karin niður í bæ áðan og keypti mér ís og virti fyrir mér mannmergðina. Maður getur alveg gleymt sér í því. Annars höfum við Andri verið upp í skóla að reyna að læra í dag það er samt svolítið erfitt að sitja inni læra þegar maður veit að það er frábært veður úti...

en jæja við ætlum að drífa okkur heim á leið og gera góðan bragðaref:)..vá það er svo langt síðan ég hef fengið mér bragðaref..namminamm...bara annar ísinn dag,geri aðrir betur8|

kveðja...ísdrottningin

Linda skrifaði
Oh en æði að hafa svona gott veður!!! :) Langar bara að fljúga út til ykkar núna ;) Annars er ég bara að vinna núna og var að vinna í 10 tíma í gær og verð örugglega lengur í dag!! En það styttist í endann á þessari törn :) Heyri í þér sem fyrst Ragga mín:) Svo leiðinlegt að þið eruð ekki á landinu því ég ætla að halda upp á afmælið mitt á laugardaginn :( Gangi ykkur vel í lærdómnum, styttist líka í lok hans hjá ykkur :)
Ragga skrifaði
Já takk fyrir það, þetta fer að vera búið:)..en úff Linda nóg að gera hjá þér..vonandi náðiru að fylla batteríin í Róm:) já það er ömurlegt að komst ekki í afmælið:(..við verðum bara með í huganum:)..ég heyri nú í þér í vikunni sæta mín.. koss og knús..Ragga

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.