Loksins helgi!! það er búið að vera svo mikið að gera í vikunni. Afhverju þarf alltaf allt að gerast á sama tíma! Jæja hérna kemur smá update: Í síðastu viku var svona trading day í Behaviroral Finance. Það var spennandi, við áttum sem sagt að fylgjast mér þróun mála hjá Swedbank. Fjármáladeildin hér í skólanum er s.s búin að herma "kauphöllina" þannig við vorum að fylgjast með reuters skjám og fengum "plat" peninga til að fjárfesta. Swedbank var að gefa út ársskýslu hjá sér og við áttum að fylgjast með þróuninni á bréfunum þann daginn. Við vorum þrjú í teymi og ég get ekki sagt að árangurinn hafi verið sá besti...keyptum oft á alltof há gengi...en allavega þá var mjög skemmtilegt að fylgjast með þessu
.
Á laugardaginn var partý hjá FÍNIS(félag ísl. námsmanna í stokkhólmi). Það var mjög gaman. Við ætluðum nú bara rétt að kíkja þar sem það var svo mikið að gera en annað varð upp á teningnum. Við komum heim að verða 2. Andri var ofurhress eftir að vera búinn að taka þátt og vinna í tveimur bjórkeppnum rétt áður en við fórum heim. Hins vegar var sunnudagurinn hjá honum ekki alveg eins skemmtilegur
. Ég var þó nokkuð hressari enda var hópverkefni allan sunnudaginn.
Núna um helgina ætlum við að skella okkur á tónleika hjá lúðrasveitinni hérna í skólanum.(já þið megið alveg hlæja) Karin vinkona mín frá Noregi er að spila í henni og mér langar að hlusta á hana. Það verður fróðlegt að sjá
Aldrei hef ég farið að hlusta á lúðrasveit áður. Þegar ég hugsa orðið lúðrasveit þá koma bara orð eins og í takt, ljót appelsínugul föt með hatt í stíl, skrúðganga og blásturshljóðfæri
Eftir tónleikana þá eru Stína og Freyr búin að bjóða okkur í mat, það verður stuð
Ég veit ekki hvort ég á að taka því persónulega eller hur?..en í dag í tíma kemur einhver gaur og spyr mig hvernig mér líði og segir að ég virki mjög þreytt..mín svaraði já takk ég er þreytt!!! (enda lærandi frameftir í gær því það var prófi í dag.).. Svo núna þegar ég var á bókasafninu að skrifa þetta blogg koma tveir gaurar í skrítnum fötum og leggja orkudrykk á borðið hjá mér???...hvað segið þið.???er þetta kannski hint...ætli maður fari ekki heim og leggi sig áður en maður fær fleiri komment í dag
Jæja þetta er orðið gott í bili og já góðar fréttir af rafmagnsmálum: Reikningurinn er greiddur! vei
Farið vel með ykkur og góða helgi
Ragga